mánudagur, janúar 02, 2006

Nýtt ár

Já það er komið nýtt ár. Ég hef nú verið heldur linur við að skrifa pistla undanfarið, en það er kanski bara allt í lagi. Árið 2005 var alveg stórmerkilegt ár fyrir mig. Þetta var ár mikilla breytinga og ber þar hæst trúarskrefið mitt sem eiginlega byrjaði þegar Sara mágkona mín bauð mér með á samkomu í Fíladelfíu 9 janúar. Mér fannst nú svolítið einkennilegt að vera þarna í fyrsta sinn en ég fann samt að þetta átti vel við mig. Ég var duglegur að mæta í kirkjuna og það endaði með því að ég tók skírn þann 7 ágúst.


Fishing

Fjölskyldan fór í fádæma skemmtilegt sumarfrí
þar sem við keyrðum um landið þvert og endilangt á gömlu Toyotunni okkar dragandi gamlan tjaldvagn sem hefði sómt sér vel á Woodstock tónlistarhátíðinni.
Breakfast

Við enduðum svo á því að fara á gospel námskeið í Kirkjulækjarkoti sem er eitt það skemmtilegasta sem undirritaður hefur gert. Þar vaknaði upp söngfugl í mér sem hefur eiginlega ekki þagnað síðan.
Gospelnámskeið
Eitt af því sem ég lærði uppá nýtt er þakklæti, það eru engir hlutir sjálfgefnir í lífinu og ég er svo heppinn að eiga yndislega konu og börnin okkar eru gimsteinarnir í lífi okkar. Það að eiga góða fjölskyldu er ómetanlagt og þakka ég guði fyrir að vera þeirrar gæfu aðnjótandi.

Kæru vinir ég óska ykkur gæfu og velfarnaðar á nýju ári.

....................Garrinn

þriðjudagur, desember 13, 2005

Verði ljós

Í gærkvöld fór ég á æfingu með dóttur minni uppí Hallgrímskirkju. Hún er að syngja þar á tónleikum á miðvikudag og fimmtudag með Stúlknakór Reykjavíkur. Á meðan ég hlustaði á engilfagran sönginn fór ég að velta fyrir mér þessari sérstöku orku sem virðist svífa yfir vötnum um þetta leiti ár hvert.

Margir eru tilbúnir til þess að rétta hinum minniháttar hjálparhönd, og það virðist svona opnast glufa inní sálarljós okkar mannanna. Mér finnst þetta nú svolítið merkilegt, en á sama tíma líka svolítið sorglegt.

Það er eins og við mennirnir ætlum að nota þennan stutta tíma til þess að bæta fyrir og lagfæra allt sem gekk úr lagi á árinu. Biðja bara 100 bænir í einu og gera 200 góðverk og sættast við 22 óvini, allt á 25 dögum, eða svo. Við segjum börnunum okkar frá því sem gerðist á jólunum, segjum þeim frá því hvað Jesú var góður og...... Svo kanski fýkur í sporin okkar þegar frá líður.

Boðskapur jólanna verður fjarlægur en er svo tekinn upp með jólaskrautinu á næsta ári. Þetta þarf ekki að verða svona, við höfum svolítið um það að segja sjálf. Lofum ljósinu okkar að skína alltaf !


Farið vel með ykkur kæru lesendur


Ykkar Garri

þriðjudagur, nóvember 29, 2005

Sigling.

Ég man að amma sagði mér sögur af því þegar hún fór fyrst í siglingu. Og var þá að meina til útlanda, eftir að flugvélar komu til sögunnar kallaði amma það bara áfram að fara í siglingu eins og kanski margir af hennar kynslóð. 'Eg var fjórtán þegar ég fór í mína fyrstu til kaupmannahafnar og ég man að ég eyddi öllum vasapeningunum í tívolí. Tilfinningin um að fara erlendis hefur lítið breyst hjá mér í tímans rás, ég fæ enn fiðring í magann kvöldið fyrir brottför og kanna örugglega tíu sinnum hvort passarnir séu ekki örugglega á réttum stað. Við hjónin fórum Til Frankfurt á föstudaginn síðasta. Jólamarkaðurinn var að byrja þessa helgi og var búið að byggja svona þorp með sölubásum all konar. Þar var selt handverk, ristaðar hnetur, jólaglögg, pylsur og bara allt milli himins og jarðar. Þegar maður er staddur á svona samkomum er gaman að loka augunum augnablik, heyra skvaldur á nokkrum tungumálum og ýmisskonar ljúfur ilmur er í loftinu, skemmtileg upplifun. Oh það er svo gaman í svona ferðum, allt nýtt, daglegt stress á bak og burt og maður endurnýjast svona á akveðinn hátt.


Passið ykkur á jólastressinu !

....Garrinn

þriðjudagur, nóvember 22, 2005

Hinn sanni tónn

Í kvöld sannaðist mér það enn og aftur hve tónlistin hefur sterkan sess í tilveru minni. Mér var boðið á hina árlegu tónleika Blásarakvintetts Reykjavíkur sem voru haldnir í Fríkirkjunni. Á efniskránni voru verk eftir Schubert, Mozart, Beethoven og fleiri snillinga. Að hugsa sér, þessi tónlist var mestmegnis samin á síðari hluta sautjándu aldar og það er enn verið að spila hana. Í efnisskránni stóð eftirfarandi :

Þú dýra list. Ég dapur mörgu sinni.
hlaut drúpa höfði í lífsins iðusveim.
uns þú gafst anda og yl þinn sálu minni,
lést opinn nýjan, betri og fegri heim
lést opinn bjartan betri heim.

Oft harpan þín af höfgum slegin trega,
oft hljómur gleðifagur benti mér,
frá drunga heims til drottins himnavega
ó dýra list, hve bljúgur lýt ég þér
Ó dýra list, ég þakka þér.


Þessi orð segja í raun allt sem ég upplifði þarna í kvöld, þegar ég lokaði augunum sá ég fyrir mér Maximilian erkihertoga sitja í rauðum pluss sófa í fagurskrýddum tónleikasal, árið var 1790 og það klingdi í kristalsglösum gesta hans.


.............Garrinn

laugardagur, nóvember 19, 2005

Saran var að klukka mig !

hefst nú lesturinn:
núverandi tími: 12.57
núverandi föt: svartar buxur,græn peysa.
núverandi skap: Gott
núverandi hár: já.
núverandi pirringur: enginn
núverandi lykt: Af sólberjaís.
hlutur sem þú ættir að vera að gera núna: taka til, .......
núverandi skartgripir: giftingarhringur
núverandi áhyggjur: öngvar
núverandi ósk: Friður á jörð.
núverandi farði: ha? núverandi eftirsjá: Ekker
núverandi vonbrigði: Ríkisstjórnin
núverandi skemmtun: Gospelkór Reykjavíkur
núverandi ást: djúp og heit
núverandi staður: vesturbærinn
núverandi bíómynd: Amelie
núverandi íþrótt: Hjólreiðar
núverandi tónlist: Lagið, fyrir náð eftir Óskar Einarsson
núverandi blótsyrði: Blóta ekki !
núverandi msn manneskjur: Er bara bloggari !
núverandi desktop mynd: Systurnar Sólrún og Björg að veiða .
núverandi áætlanir fyrir kvöldið: Afslöppun
núverandi dót á veggnum: Allt of mikið !
ég klukka : Alla þá sem nenna

fimmtudagur, nóvember 17, 2005

Sælla er að gefa.

'Eg ákvað nú að fara að fordæmi mágkonu minnar Söru og láta vita um að hefur verið opnaður reikningur sem hægt er að leggja inná til að styrkja Val.


1175-26-511739 og kennitala: 220552-3739 og Fálkar sem auðkenni. Nú skulum við öll sameinast og sýna það að þegar bróðir okkar er í vanda getur hann reitt sig á okkar hjálp !


...................Garrinn

þriðjudagur, nóvember 15, 2005

Fólk í fyrirrúmi

Þegar ég var að setja lykilorðið mitt inn þurfti ég aðeins að hugsa mig um. Það er orðið nokkuð síðan að pistill var skrifaður á þessari síðu. Ekki það að neitt merkilegt hafi gerst síður en svo, ég hef bara verið eitthvað svo tímalaus eitthvað.

Það brennur nú margt á mér í augnablikinu eins og t.d málefni Vals vinar míns sem þið getið lesið hér Alveg er það furðulegt að svona nokkuð skuli geta gerst í siðmenntuðu þjóðfélagi.

Þorsteinn Guðmundsson sagði á Eddu verðlauna hátíðinni að fyrir andvirði brjóstaaðgerðanna sem konurnar í salnum hefðu farið í væri hægt að gera 15 Íslenskar bíomyndir, kanski gróft en skírskotunin engu að síður góð.

Við heimtum réttlæti og jöfnuð !



............Garrinn