fimmtudagur, mars 31, 2005

Hvað er að gerast ?

Alveg er þetta búinn að vera ótrúlegur dagur. Frábært jafnvægi hjá mér aldrei þessu vant. Bað í fyrsta sinn í gærkveldi jesús að koma inn í hjarta mitt. Vaknaði svo alveg ótrúlega heiðskýr að það hálfa væri nóg. 'I hádeginu fór ég niður í Fíladelfíu og keypti mér Joyful diskinn og þegar ég var búinn að borga hann sagði konan í afgreiðslunni: Guð blessi þig, og þá bara helltist yfir mig þvílík tilfinning að ég stóð bara agndofa. 'Eg hugsaði : hvað er eiginlega að gerast ??? Þegar ég kom útí bíl setti ég diskinn í og stax og tónlistin byrjaði fékk ég gæsahúðarköst og einhvernegin svona innra bað hm.... 'A meðan ég skrifa þetta er tilfinningin enn að magnast og ætla ég bara að bíða átekta og fylgjast með................

Langaði bara til þess að deila þessu með ykkur....

..............GArrinn

Smápeningar

Anno 1928

Anno 1928

Þegar ég kom út í morgun tók ég þessa mynd af húsinu okkar.

Það var svo frábært að standa þarna í logninu og anda að sér morgninum og láta hann umvefja sig. Svo á leiðinni í vinnuna fór ég af einhverjum ástæðum að hugsa um söfnun fyrir sos barnaþorp sem fór fram fyrir nokkrum árum. Hún fór þannig fram að fólk var beðið um að safna saman erlendum smápeningum sem finnast á ansi mörgum heimilum. Það var svo búið að semja við erlendan banka um að taka við þeim.

Þessir smápeningar finnast á flestum heimilum 'I krukkum eða krúsum uppi í skáp eða í ofaní skúffu. Þetta var náttúrulega bráðsniðugt því að peningarnir voru náttúrulega verðlausir í augum flestra. Þegar upp var staðið hafði safnast ótrúlega há upphæð, miklu hærri en nokkurn hafði grunað.

'Eg fór að hugsa.. trúin mín var einn af þessum smápeningum í krukkunni í ansi langan tíma. Svo gerðist eitthvað og kallið kom, trúlega hafa þessir mögnuðu einstaklingar hér á blogginu haft sitt að segja. Allavega er komið vor í sálina mína og ég lít bjartsýnn fram á veg því að ég veit að það bíður mín eitthvað magnað............


Verið stillt................Garrinn

þriðjudagur, mars 29, 2005

Trufl...........

Stígurinn frá húsinu okkar
The path

Fékk nýja myndavél í dag. Saran reddaði þessu öllu með glæsibrag eins og hennar er von og vísa. Vonandi gefur það skemmtilegri vídd í bloggið að geta sett inn svona eina og eina mynd. Búinn að vera eitthvað pirraður og strekktur í dag. Bið bara fyrir sjálfum mér í kvöld..... Jæja, þetta verðu nú í styttri kantinum núna því að ég er farinn að fikta.. úff þetta er nú aðeins meira mál en blessað blog central, en miklu fleiri möguleikar...

Guð veri með ykkur.........................Garrinn

mánudagur, mars 28, 2005

Fékk nóg....

Kæru lesendur. 'Eg er að spá í að færa mig yfir á þetta svæði. Það virðist öruggara er blog central. Gef mér tíma fljótlega til þess að skrifa mína fyrstu grein hér.

Kveðja............................Garrinn