Hvað er að gerast ?
Alveg er þetta búinn að vera ótrúlegur dagur. Frábært jafnvægi hjá mér aldrei þessu vant. Bað í fyrsta sinn í gærkveldi jesús að koma inn í hjarta mitt. Vaknaði svo alveg ótrúlega heiðskýr að það hálfa væri nóg. 'I hádeginu fór ég niður í Fíladelfíu og keypti mér Joyful diskinn og þegar ég var búinn að borga hann sagði konan í afgreiðslunni: Guð blessi þig, og þá bara helltist yfir mig þvílík tilfinning að ég stóð bara agndofa. 'Eg hugsaði : hvað er eiginlega að gerast ??? Þegar ég kom útí bíl setti ég diskinn í og stax og tónlistin byrjaði fékk ég gæsahúðarköst og einhvernegin svona innra bað hm.... 'A meðan ég skrifa þetta er tilfinningin enn að magnast og ætla ég bara að bíða átekta og fylgjast með................
Langaði bara til þess að deila þessu með ykkur....
..............GArrinn

