fimmtudagur, mars 31, 2005

Smápeningar

Anno 1928

Anno 1928

Þegar ég kom út í morgun tók ég þessa mynd af húsinu okkar.

Það var svo frábært að standa þarna í logninu og anda að sér morgninum og láta hann umvefja sig. Svo á leiðinni í vinnuna fór ég af einhverjum ástæðum að hugsa um söfnun fyrir sos barnaþorp sem fór fram fyrir nokkrum árum. Hún fór þannig fram að fólk var beðið um að safna saman erlendum smápeningum sem finnast á ansi mörgum heimilum. Það var svo búið að semja við erlendan banka um að taka við þeim.

Þessir smápeningar finnast á flestum heimilum 'I krukkum eða krúsum uppi í skáp eða í ofaní skúffu. Þetta var náttúrulega bráðsniðugt því að peningarnir voru náttúrulega verðlausir í augum flestra. Þegar upp var staðið hafði safnast ótrúlega há upphæð, miklu hærri en nokkurn hafði grunað.

'Eg fór að hugsa.. trúin mín var einn af þessum smápeningum í krukkunni í ansi langan tíma. Svo gerðist eitthvað og kallið kom, trúlega hafa þessir mögnuðu einstaklingar hér á blogginu haft sitt að segja. Allavega er komið vor í sálina mína og ég lít bjartsýnn fram á veg því að ég veit að það bíður mín eitthvað magnað............


Verið stillt................Garrinn