'Ari eldri.....
Afmælisblogg
Elsku vinir. Þakka ykkur fyrir allar kveðjurnar til mín, þær fóru beint í hjartað (bang)!!! Þetta er búinn að vera fínn dagur og í kvöld var smá afmæliskaffi og voru eftirfarandi gestir mættir . Saran , Gillinn , Rúnar, Tamila , Svanhildur, Bjartur , Hjörtur og Ásdís. Fékk frábærar gjafir ma. Sundskýlu, lofgjörðardisk, rauðvín, og bókina bæn Jaebesar. Mér líður vel en samt er einhver óskilgreind tilfinning að læðupokast inni í mér. Svona blanda af tilhlökkun og einmanaleika. Kanski er ég búinn að bera mig svona rækilega á torg að ég stend orðið nakinn eftir ? Allar tilfinningar komnar í flækju eftir allt trúarflippið. Hvað haldið þið ? Ég svolítið utan við mig þessa dagana (svona eins og í vímu) en ég ætla að reyna að læða inn öðru hverju smá pistlum.
.................Garrinn (þreyttur)

