The day after..........
Þvílíkur dásemdar dagur. Allir litir eru skýrari (frábært ef maður vinnur í málningarbúð eins og ég) Tilfinningin fyrir öðru fólki er allt öðruvísi. 'Eg bað um það að dómharkan og hrokinn yrði tekinn frá mér ... og það hefur lagast 75%. Innri fínstilling er 100% (eins og í Íslandsbanka) 'Eg er samt meðvitaður um það að bleika skýið er bara um stundarsakir. Það mun koma sá tími að ég þarf að taka næsta skref.... hvað sem það verður. En eitt er víst að þegar ég skoða síðasta sólarhring í samhengi er eitt á hreinu............. og það er að jesú er raunverulegur. 'Eg hef fundið það svo um munar. Þessi annars saklausa tilraun mín sem hófst fyrir um 6 mánuðum hefur fært mér óvænta niðurstöðu. Bænin hefur tilgang. Hún er raunveruleg leið til þess að færa hlutina úr stað ! Óvænt fyrir mig og alveg frábært !!!!!! 'Eg er svolítið ringlaður núna en ég vil að lokum þakka öllu því góða fólki sem hefur með vitnesjku sinni og nærveru í andanum verið samferða mér í þessari fyrslu reynslu minni af guði. Og síðast en ekki síst... Gospelkór Reykjavíkur hefur lyft anda mínum í hæstu hæðir og er það ómetanlegt að hafa aðgang að svo uppörvandi og fallegri andans tónlist.
Þið eruð ótrúleg og hjartahlý !
.......................................Garrinn

