Eigin heimur !
Það er fínt að hverfa svona inn í sig án þess að vera einhverfur. 'Eg er nú búinn að vera svo úthverfur undanfarið og búinn að segja ykkur frá mjög svo persónulegum málum að annað var eiginlega ekki hægt. Tengdapabbi segir að veröldin sé byggð upp á andstæðum, og svei mér þá að ég er bara nokkuð sammála honum. 'Eg hitti konu um daginn sem var að ferðast um landið og sagði hún mér að hún byggi á lítilli eyju norður af Tromsö í Noregi. Hún býr þarna ásamt manninum sínum við mjög frumstæð skylirði. Þau eru reyndar með vindmyllu sem framleiðir það rafmagn sem þau þurfa og einnig eru þau með bát sem þau róa á og veiða í soðið. Þau lifa á 500.000 íslenskum krónum á ári ! Það var eitthvað sem sat eftir í mér þegar ég hafði sagt þessari ágætu konu til vegar í höfuðborginni okkar. Kanski ætti maður bara að gefa helming eigna sinna eins og stendur í bókinni góðu ? Nei varla, en kanski bara að vera nægjusamari og gefa meðalmennskunni langt nef. Það er hægt að skapa sér eigin prívat heim inni í þessum stóra og fylgja eigin lögmálum um það sem skiptir máli. Maður hefur jú þetta sem heitir val en það er samt spurning hvort valið er frmkvæmt af hjartanu eða af einhverjum öðrum hvötum. Eins og ég hef sagt margsinnis áður er svo mikilvægt að næra sjálfan sig og neita sér ekki um það þó að það "passi" ekki alltaf inn í skrykkjóttann takt nútímans. Þetta var nú bara sem ég þurfti að segja í bili.
Takk fyrir öll kommentin og guð blessi ykkur og fjölskyldur ykkar.
...........................Garrinn

