Steinn eða kirkja ?
'Eg var að lesa eftirfarandi í bók sem ég fékk gefins. Maður nokkur gekk fram á 3 menn á byggingarstað. Hann spurði þann fyrsta :" Hvað ertu að gera ?" 'Eg er að leggja steina. Hann spurði þann næsta: " Hvað ertu að gera ?" 'Eg er að hlaða vegg. Maðurinn gekk að þeim þriðja og spurði hann sömu spurningar. Sá leit upp og sagði með bros á vör: 'Eg er að byggja kirkju. Þessi stutta frásögn kom mér til þess að spyrja sjálfan mig hver af þessum mönnu ég héldi að ég væri. Hvaða sjónarhorn hef ég á lífið? Það er svolítið skrýtið, þagar maður spyr sjálfan sig að einhverju þá kanski reynir hugurinn að finna þægilegasta svarið. Maður vill kanski ekki mæta sjálfum sér nema í einhverjum fyrirfram ákveðnum aðstæðum. 'Eg hreinlega treysti mér ekki til þess að svara sjálfum mér. Trúlega er ég allir þessir menn. 'Eg vona að guð gefi það að ég fái nú réttan áttavita í hendurnar og sannarlega finnst mér að ég sé nær því nú en ég hef verið allt mitt líf. 'Eg finn að samneyti mitt við fólk sem er á trúarlegri leið í lífinu er mér mikilvægt enda skýtur það upp kollinum nýlega í tíma og ótíma. 'Eg átti yndislega stund í Kristskirkju (Fórum saman ég og Saran) í kvöld og það var mjög ánægjulegt að hitta alla bloggvinina 'Arnýju,'Agústu og Jasser. 'Eg fann hlýjuna þarna og mér fannst ég vera velkominn. 'Eg er samt að melta þetta allt saman sem ég er búinn að vera að upplifa undanfarið og núna er ég alveg uppgefinn.´'Eg hafði ætlað að skrifa miklu meira.
Hafi það öll sem best.................Garrinn ( búinn á því )

