laugardagur, apríl 23, 2005

Vor í Vesturbæ.

waving shadowman


'I dag byrjaði sumarið. 'Eg fór út og jakkinn var kæruleysislega flaksandi og sjá mér var ekkert kalt. Frábært að þurfa ekki að nánast brjótast inn í bílinn á morgnana hálf freðinn iða sér í sætinu og garga AHHHHHHHHH það er svo kalt!!! 'Eg fór í göngutúr um vesturbæinn og komst að því enn og aftur að hann er alveg stór merkilegur.Á leiðinni hitti ég svona 8 ketti (og klappaði þeim öllum) mætti Markúsi Erni með Hor kóla flösku (Diet Coke) í hendinni. (er hann í megrun ?) Rakst á Þorstein Joð og spjallaði við hann. Sá 2 feitar randaflugur örmagna á gangstéttinni (klappaði þeim ekki) Sá Mugison, Mugimama og Mini Moog labba niður Bakkastíginn. Og húsin hérna maður, dásamlegt. Byggð velflest í kringum 1900 - 1930 og í öllum regnbogans litum. Það er nú öllu hressara yfirbragðið hér heldur en á mörgum stöðum það sem allt er grátt og guggið... Jæja vonandi eruð þið á fullu að meðtaka þessa dásamlegu árstíð og ég veit fyrir víst að sumarið verður HEITT !

...........................Garrinn