þriðjudagur, maí 03, 2005

Blessuð börnin.

Red lip girl

Já ég er búinn að gera mér fullkomlega grein fyrir því að ég hef vanrækt börnin mín. Þetta ætti nú enginn heilbrigður einstaklingur að segja, en í minu tilfelli er það satt. Nú hef ég ákveðið að snúa við blaðinu og gefa þeim eins mikinn tíma og ég mögulega get. 'Eg á alveg yndisleg börn, bæði falleg og skemmtileg. Um daginn var ég að ganga með Sólrúnu út í búð og þá stoppaði hún, leit á mig og sagði : pabbi ertu með danskan pening í vasanum ? Ha sagði ég og þá bara glotti hún og hélt áfram. 'A morgnana fer ég með Sólrúnu í leikskólann og henni er sko ekki sama í hvaða fötum hún fer. 'Eg leyfi henni að velja sjálfri þótt svo að litasamsetningarnar séu stundum eins og hún sé að fara á Woodstock. Svo fléttar hún sig sjálf fyrir framan spegilinn snýr sér í hring og segir : pabbi ég er tilbúin. Þetta eru ógleymanlegar stundir fyrir mig og oft er ég kominn að því að garga úr hlátri, en passa mig samt því annars myndi hún hvessa augun og segja hættu að horfa ámig. ('A há céinu) Björg er töluvert viðkvæmari en Sólrún og getur sveiflast á tilfinningaöldunum allan daginn (eins og pabbi hennar) Hún er svakalega gjafmild og oftar en ekki hefur hún boðið hálfu hverfinu inn til okkar í vöfflur. Þá segir hún kanski yfir hópinn : pabbi minn er snillingur í að gera vöfflur ! Henni finnst gaman að syngja og er líka flinkur teiknari eins og systir hennar.

Jæja gott í bili.

P.s Munið eftir tónleikum Gospelkórs Reykjavíkur 16 og 17 mai í Fíladelfíu.

...........Garrinn