þriðjudagur, maí 24, 2005

Hvurslags ?

DSCN0319


Já það er nú orðið allt of langt síðan ég hef gefið mér tíma til þess að blogga. 'Eg held að síðasta færsla hafi verið um það leyti sem að við hjónin fórum á tónleikana með Gospelkór Reykjavíkur. Þeir voru eiginlega svo magnaðir að ég hef kanski þurft þennan tíma til þess að skrifa ekki bara !!!!!!!!!! Í kommentið daginn eftir. Konan mín var svo hrifin að hún ákvað að koma með mér á gospelmótið í Kirkjulækjakoti í júlí. Þar verður sko sungið og sungið útí eitt og er ég kominn með fiðrildi í magann.................... Við höfum verið að æfa okkur í Singstar en þar virðist vera fátt um almennileg lög, eða kanski er maður bara að verða gamall því að ég þekki ekki helminginn af lögunum. Reyndar datt mér í hug að hringja í 'Olaf Jóhann fyrrverandi Sony spekúlant og spurja hann hvort að hann gæti ekki hringt í Sony og spurt þá hvort að væri ekki sniðugt að láta framleiða Singstar Gospel og Singstar Eurovision ha' Væri það ekki magnað maður, og svo Sigstar eightys og.........

Um daginn hringdi Bryndís konan mín í mig í vinnuna og sagði mér að hún væri með hugmynd, reyndar var þetta ný útgáfa af hugmynd okkar sem við ætluðum að framkvæma einhverntíman í framtíðinni. Jú hugmyndin er sú að öll fjölskyldan ætlar að fara til Ameríku eftir 3 ár og ferðast í húsbíl í 2 mánuði. Ekki sniðugt ?

Við erum líka byrjuð á herbergi stelpnanna í kjallaranum og er ætlunin að myndablogga framkvæmdirnar sem eiga að verða yfirstaðnar fyrir 22 júní en þá á Sólrún 5 ára afmæli. Já það er allt að gerast og mikið gaman framundan,


Læt vita af mér oftar....

ykkar....Garri