Jesúpistill.
Það er nú orðið töluvert síðan að ég hef skrifað almennilegan jesúpistil. Þið hafið fengið að fylgjast með raunveruleika-bloggi um mann sem gerir sér allt í einu grein fyrir því að það vantar eitthvað inn í líf hans, þótt að hann eigi frábæra konu, yndisleg börn þak yfir höfuðið og góða heilsu. Það vantaði vitneskju og trú að þetta líf hefði annan tilgang en að bara lifa því eins heiðarlega og maður getur og svo bara allt búið...boing !
Það er fyrst núna sem ég geri mér fullkomlega grein fyrir því að guð er raunverulegur því að ég hef fundið það. Það er svo furðulegt að það er allt öðruvísi tilfinning að umgangangast annað fólk til dæmis. Bara svona afslappað og ekkert að vera taka inn á sig dæmi lengur. Þegar þessi trúarvakning mín byrjaði var ég svolítið sressaður yfir því að fara á eitthvað trúarflipp eins og sagt er, missa jarðtenginguna og svífa bara eins og gasblaðra til himins.
Þetta voru nú óþarfa áhyggjur því að þetta er ekkert svona, bara mjög heilbrigt ferli sem hefur opnað augu mín heldur betur og ég er tilbúinn í langt og spennandi ferðalag ! 'Eg hef líka verið duglegur við að biðja og lesa guðs orð. Það er svo gott að fá að upplifa nærveru heilags anda og finna hvernig hann vinnur með mann fram og til baka, maður þarf jú bara að biðja ekki satt !
A morgun förum við hjónin á tónleika Gospelkórs Reykjavíkur og er viss um að það það verður stórkostlegt. Mér finnst lofgjörðin yndisleg !
Jæja þið öll, svona er þetta, mér finnst það ljúft og skilt að segja ykkur frá þessu því að kanski hjálpa þessi fátæklegu orð einhverjum þarna úti sem efast
................Garrinn örlítið endurbættur !

