Rebirth !
Það er nú bara þannig að ég hef ekki gefið guði mikinn tíma undanfarið. Of upptekinn við framkvæmdir heima, en hvað ? 'Eg á að vita betur því að ég hef sko sannarlega fundið fyrir því að ég hef vanrækt trúnna. Mér finnst ég svo innantómur og pirraður. Af hverju gerist þetta ? Mér eiginlega líður eins og fuglsunga sem stendur á grein á háu tré og horfir niður, skyldu vængirnir vera nógu öflugir ?
'Eg fékk nefninlega svarið í dag alveg óvænt ! 'Eg fór niður í Fíladelfíu til þess að borga staðfestingargjald fyrir gospel-mótið sem að við Bryndís ætlum á. Þegar ég kom inn (í jötuna) gekk ég beint að geisladiskarekkanum, tók upp einn disk og las : The rebirth of Kirk Franklin......Aha hugsaði ég, það var búið að benda mér að kaupa þennan. Svo fann ég allt í einu fyrir nærveru, svona eins og mjúkt ósýnilegt teppi væri breitt yfir mig, ég get svarið að heilagur andi var á staðnum !
Jæja ég borgaði og fór aftur í vinnuna. Þegar ég kom heim opnaði ég hulstrið á diskinum og hvað sá ég................. When God allows the breaking process to happen in believers life, it can be a very dark time. Picture Job : crying over the bodies of his dead children. Picture Joseph : betrayed by his brothers for twenty dollars. Picture Jesus : sweating in anguish over his fear , and Gods will. Life and death, smiles and sorrow, you and him......
Rejoice ! For your rebirth is near.
'Eg brosti bara þegar ég var búinn að lesa þetta, setti diskinn í og................Hosanna..........Þetta er frábær tónlist..........ég fékk gæsahúð og alles................ítrekað !
Guð veri með ykkur kæru lesendur, það eru spennandi tímar framundan !
..................Garrinn

