Teljarar.

Það er svo skemmtilegt hvað við mennirnir erum uppteknir af því að telja og mæla allt milli himins og jarðar. Það eru kílómetrateljarar á bílunum okkar og er að þeir sýna svona háa tölu eins og á myndinni fyrir ofan er rétt að fara að leita sér að nýjum. Eða hvað, að vísu er Toyotan okkar orðin 16 ára en er samt í fullu fjöri svo að ég læt þessar tölur í mælaborðinu lönd og leið. En við mennirnir erum með svona innbyrðis teljara sem við lesum alltaf á öðru hvoru og vitnum gjarnan í. Hey ég er búinn að segja þér þetta þúsund sinnum ! Og næst væri það þá : Hey ég er búinn að segja þér þetta þúsund og einu sinni... Hvað ætlum við að prófa að gera sama hlutinn á sama hátt er hann skilar ekki tilætluðum árangri ? Spáið í það að segja einhvejum þúsund sinnum : Halló ! ég var búinn að segja þér að loka klósettsetunni ! Ha ? Væri ekki uppbyggilegra að segja kanski : Hey eigum við að loka henni saman ? Nei í alvöru, ég hef beðið Jesú um að sýna mér nýjar leiðir í samskiptum og eitt af því er að hætta að gera hlutina í eigin mætti. Það er alveg frábært að finna það hvernig er verið að losa alla gömlu teljarana úr mér og endurstilla þá.
Jæja ég er orðinn spenntur að fara í Kirkjuna í dag og ef ég man rétt er það í 7 skipti á árinu.
Verið góð og guð blessi ykkur.................Garrinn

