fimmtudagur, júní 23, 2005

Fyrir og eftir

Hér verður einhvern tíman fínt

Smá fréttir héðan. 'Eg er búinn að vera mánuð að brasa í þessum endurbótum. Orðinn doltið þreyttur, allt búið að vera í ryki og drasli. En þetta er að verða búið eins og þið sjáið. Hvað finnst ykkur ???


The sunny side






..........................................Garrinn

fimmtudagur, júní 09, 2005

Gott veður hjá okkur.

Nýja loftið


Mikið er ég ánægður að hafa gert svona himinn, þegar er grátt og guggið úti fer ég bara niður í kjallara og horfi upp í heiðan himininn. Þið sjáið kanski betur litbrigðin á þessari mynd !





......................................Garrinn

miðvikudagur, júní 08, 2005

Frábær dagur (eða annar í hárþynningu)

Systurnar fóru í myndasjálfsala
Björg og sólrún



'I gær tók konan mín af mér mynd. Þegar hún var búin fór hún að glotta, ég spurði hana hvaða væri svona sniðugt ? Þetta sagði hún og rétti mér vélina. 'A skjánum var maður sem líktist mér en hárið var farið að þynnast svolítið á hvirflinum ?

'Eg rauk og náði í lítinn spegil og skoðaði hársvörðinn í krók og kring. Þetta er nú ekkert alvarlegt hugsaði ég, ég er nú með svo fíngert hár, eða var stípulitun Duran Duran tímabilsins loks búin að taka sinn toll og ég yrði eins og biðukolla (blásin) eftir nokkra mánuði ?

'Eg fór í afneitun en fór samt inn á Doktor.is og sló inn: Hárþynning en fékk mest upp leitarstrengi um hárvandamál hunda ???? En fann samt eitthvað kompaní sem selur hátoppa og svo vítamínkúra fyrir hárlausa og svo bara hætti ég ! 'Eg er í raun mjög viðkvæmur fyrir svona útlitsbreytingum á sjálfum mér en ákvað samt að gera þetta opinbert til þess að reyna að yfirvinna fóbíuna.

'I dag fórum við stelpurnar í Smáralind og vorum við mætt á slaginu 11. 'Eg átti 5000 króna gjafakort og var spennandi dagur framundan. Að sjálfsögðu fórum við á Burger King og fengum okkur hammara og meððí. Síðan röltum við í Hagkaup og keyptum nýjar pollabuxur á Sólrúnu. Stelpurnar voru í fínum gír og leið okkur eins og við værum í útlöndum. 'A meðan að þær skoðuðu Barbídúkkur í búðargluggunum rýndi ég í hársvörðinn á þeim sem gékk framhjá.

'Eg gæti kanski látið bródera nælonhár í skallann á mér eins og Ingólfur Guðbrands ? Nei........ Eða bara látið raka allt af eins og Egill 'Olafs ? Ha ?............. Já eða verið með svona hárband eins og Eyfi var með í júróvisjón................ fengið mér flotta húfu eins og Einar Örn sykurmoli........fengið mér bara nýjan stíl.............töff, með brúnan skalla......gullkjeðju um hálsinn og.................... 'eg rankaði við mér þegar ég hafði næstum velt rusladalli um koll. Hló að sjálfum mér í huganum. Við eldumst jú öll og ég verð bara að horfast í augu við það þó að það sé stundum erfitt.


Já og hafið það gott........

....................Garrinn

þriðjudagur, júní 07, 2005

Skýin

Skýin komin


Jæja. Var að klára loftið og ég er ég með þvílíkan hálsríg...... Fór 4 umferðir af mismunandi bláum litum með ekta olíulitum og málaði síðan ský á himininn. Það verður alltaf gott veður hjá stelpunum. Er í fríi þessa viku og tek á því........ fer örugglega langt með að klára bara það mesta..


Guð geymi ykkur.

...........................Garrinn (í stuði)

föstudagur, júní 03, 2005

Staðan í dag !

Loftið slípað


Allt á fullu í endurbótum ! Smellið á myndina og skoðið albúmið Home improvement.


Sjáumst.
...........................Garrinn