miðvikudagur, júlí 06, 2005

Kva ha ?

Já, loksins þegar maður bloggar er það heldur betur eitthvað hressandi. Öll fjölskyldan er komin í sumarfrí, alveg frábært ! Og við erum búin að vera að skipuleggja ferð um landið okkar nokkuð lengi.

Jæja svo bilaði fjölskyldubíllinn, mér var sagt af kunnugum að það væru farnar afturhjólalegur, nú hugsaði ég þetta er nú oðinn svo gamall bíll og ekkert óeðlilegt við það. Bíllinn sendur í viðgerð, og............. töluvert betri, en ekki algerlega laus við aukahljóð.

Aftur á verkstæðið........... já það er farin lega í millikassanum (drifúrtakinu)............. já,,,,,, en viti menn, vinnufélagi minn á alveg eins bíl og haldið ekki bara að strákurinn hans hafi gersamlega brætt úr vélinni í honum og........... eins dauði annars brauð.

'Eg fæ að hirða kassann úr hans bíl. Og svo fengum við líka lánaðan þenna fína Combi Camp tjaldvagn árgerð 1973. 'I gær var ég að þrífa hann og pússa voða glaður og svo keyptum við líka fullt af útilegudóti gashitara og fleira skemmtilegt.

'I morgun fór ég svo með hann á dekkjaverkstæði því að annar dekkið á vagninum var nánast ónýtt. Þegar betur var að gáð var slangan við það að gefast upp og viti menn........ það er ekki til svona slanga á landinu.....svo eftir miklar vangaveltur og tilraunir náði Magnús vinur minn (snillingur) að bjarga þessu öllu... Já Já Já........... Svo í kvöld opnaði ég vagninn og var að setja í hann stóla og fleira..................... sá ég þá ekki að stangalömin sem vagninum er velt á er hreinlega að detta af ???????

.....Hringdi í annan snilling Gísla Guðna og bar mig aumlega,.,.,.,.,.,.,.,. Við reddum þessu bara annað kvöld ha?.....Þannig að ,,, á morgun fer ég að kaupa nýja löm, keyri svo vagninn á viðgerðarstað, fer með bílinn á verkstæði, fæ far til baka með Sörunni,sæki svo vonandi bílinn seinni partinn,fer og hitti Gísla kl 8 og gerum við vagninn. Svo bara beint af augum í fríið.............vonandi.

Finnst ykkur þetta hægt ??

......................Garrinn