'Akvarðanir
Já ég held nú bara að ég sé að komast í þetta sem flestir kalla rútínu. Kanski svolítið merkilegt að finna öryggi í því að endurtaka sömu hlutina aftur og aftur. En hjá mér hafa staðið yfir töluverðar breytingar en ég er samt ekkert óöruggur eða stressaður. 'Eg fann bara allt í einu að ég yrði að taka ákvarðanir í stað þess að velta hlutunum endalaust fyrir mér, ef að ég geri þetta þá missi ég hitt... ! Syndrómið. Þetta þarf heldur ekki að snúast um að græða eða tapa, heldur um að fylgja hjartanu sem er svolítið annað en hausinn. 'Eg lét skíra mig í Fíladelfíu fyrir skömmu, tók sem sagt trúarlega ákvörðun. Og hvílíkur léttir. Þetta var yndisleg athöfn þar sem ég átti stefnumót við Jesú og ég fann virkilega að ég var að gera það eina rétta fyrir mig. Það hefur allt verið svo afslappað og fínt að ég er eiginlega að verða smá stressaður yfir öllum rólegheitunum. Nei nei.
Verð að fara... meira síðar
Garrinn



