Gaman
Þegar ég var að hræra í hafragrautspottinum núna rétt í þessu lenti ég í einu af þessum augnablikum þegar hugurinn fer að meta stöðuna. 'Eg sá fyrir mér ör - snöggt ýmislegt í mínu lífi og það var eins og allt væri samsett úr litlum púsluspils - bitum. 'Eg hugsaði að þetta væri vonandi tákn um að ég væri farinn að sjá hlutina í víðara samhengi, og svei mér þá ég held það bara. Síðustu vikur eru búnar að vera ótrúlega magnaðar. Hringferð fjölskyldunnar um landið gekk glimrandi vel og við fengum alveg frábært veður allan tímann. Myndir segja oft meira en mörg orð og hér getið þið séð með því að smella á myndina nokkuð af því sem fyrir augun bar dagana 8 - 23 júlí.


Það var svo rétt tími til þess að henda í þvottavél þegar við komum heim því að við hjónakornin vorum skráð á gospelnámskeið í Kirkjulækjarkoti í fljótshlíð daginn eftir. Ásdís vinkona okkar passaði stelpurnar okkar á meðan, reyndar vill það svo skemmtilega til að hún er ættuð af næsta bæ og voru englarnir því skammt undan.
Þessi helgi var alveg stórkostleg og það var ótrúleg upplifun að fá að syngja lofgjörð frá morgni til kvölds 3 daga í röð. 'A sunnudagskvöldið voru svo haldnir tónleikar þar sem kórinn flutti 12 lög fyrir um 100 áheyrendur. Frábær endir á einu skemmtilegasta sumarfríi sem undirritaður hefur farið í !
Hafið það gott elskurnar.
........................Garrinn

