'Akvarðanir 2
Ég held að núna sé tíminn til þess að breyta og taka þessar ákvarðanir sem við höfum sópað bara undir teppi. Ég hef í raun snuðað sjálfan mig um svo margt í seinni tíð í nafni tímaleysis, peningaskorts og ég veit ekki hvað og hvað. Ég var farinn að upplifa sjálfan mig þreyttann, pirraðan, gráann og gugginn. Þetta fór að breytast allt saman þegar ég tók trúarskrefið. Þar var lykillinn að öllu því sem ég var búinn að reyna að breyta í eigin mætti. Það var eins og neikvæðum tilfinningum og hugsunum væri svipt í burtu, og í staðinn fékk ég að upplifa hugarró sem ég get ekki alveg lýst. Jæja hafið það gott um helgina kæru lesendur.
................................Garrinn

