mánudagur, september 19, 2005

'Akvarðanir 3

Eins og í öllum alvöru hasarmyndum fullkomnast þríleikurinn í síðustu myndinni. Reyndar hafa nú sumir verið ansi lagnir við að mjólka markaðinn og framleitt jafnvel 5 - 6 framhaldsmyndir s.b Death wish og fleiri slíkar. En þá er kanski von að maður spyrji, af hverju eru menn einvörðungu að framleiða framhalds - hryllings/hasarmyndir ? Af hverju ekki að gera t.d Rainman 2 eða eitthvað álíka. Hrikalega er það nú lélegt að fá kanski bara eina "góða" hugmynd sem handritshöfundur en framleiða svo kanski bara fimm stykki bíomyndir úr sama handritinu, klessa svo bara 2,3,4,5 á sama auglýsingaspjaldið í bíóinu. Nei kanski er þetta bara snilld, svo mikil snilld að maður bara fattar ekki hvar snilldin er fólgin. Kanski sama snilld og Matthew Barney skartar í sinni nýjustu mynd sem er víst svo mögnuð að hún er bönnuð innan 100 (í greindarvísitölu) Annars hafa þetta nú verið hálfgerðar molafréttir hjá mér undanfarið, mikið annríki hjá mér í nýja starfinu. Já ég er orðinn framkvæmdastjóri Litalands (svoldið eins og Bæjarstjórinn í Latabæ) 'Eg lofa nú að vera oftar á ferðinni með hressilegri pistla í framtíðinni.


Ykkar Garri


P.s
Saran er búin að meikaða á Flickr myndasíðunni
kíkið áða.


http://www.flickr.com/photo_zoom.gne?id=43782796&size=m