Á föstudegi.
Já það er greinilega að koma vetur, þegar ég kom út í morgun var allt heldur hryssingslegt og snjófjúk í loftinu. Þetta er árstíðin sem fólk hleypur um í rokinu á heimleið eða inn í bíl. Ef það hittir einhvern staldar það örstutt við, heldur í húfuna og segir : ég hringi bara í þig við tækifæri. Langar biðraðir myndast við dekkjaverkstæðin og sprittkerti seljast í brettavís. Eru ekki árstíðirnar dásamlegar, allar hafa þær sitt sérkenni. Fólk verður svolítið innhverfara á veturna, kanski svona andlegra á einhvern hátt og fer þá að leita, að innri ró og lífsfyllingu. Vonandi hafið þið það gott um helgina kæru vinir.
........Garrinn

