Tíminn.
Ég vildi að ég hefði meiri tíma, stundum finnst mér að ég hafi svo lítinn tíma að maður bara sest niður og spekúlerar í því og bara dæsir. Sumir segja að þetta sé bara spurning um forgangsröðun og trúlega er það rétt. Við kanski eyðum bara of miklum tíma í vinnunni og við aðra iðju sem við teljum ægilega mikilvæga. Stundum þegar að maður stendur fyrir framan það að leysa úr einhverju í eigin lífi áttar maður sig stundum á því að maður hefur gefið einhverjum góð ráð í svipaðri aðstöðu. Já það er gott að geta gefið öðrum góð ráð en heldur verra að geta ekki farið eftir þeim sjálfur. Practice what you preach sagði einhver og ég held að það séu orð í tíma töluð. Ég er nefninlega farinn að átta mig á þvi (late bloomer) að sandurinn í tímaglasinu mínu er svona uþb háfnaður í rennslinu og því dýrmætt að nota stundirnar vel.
Ykkar Garri.

