Sigling.
Ég man að amma sagði mér sögur af því þegar hún fór fyrst í siglingu. Og var þá að meina til útlanda, eftir að flugvélar komu til sögunnar kallaði amma það bara áfram að fara í siglingu eins og kanski margir af hennar kynslóð. 'Eg var fjórtán þegar ég fór í mína fyrstu til kaupmannahafnar og ég man að ég eyddi öllum vasapeningunum í tívolí. Tilfinningin um að fara erlendis hefur lítið breyst hjá mér í tímans rás, ég fæ enn fiðring í magann kvöldið fyrir brottför og kanna örugglega tíu sinnum hvort passarnir séu ekki örugglega á réttum stað. Við hjónin fórum Til Frankfurt á föstudaginn síðasta. Jólamarkaðurinn var að byrja þessa helgi og var búið að byggja svona þorp með sölubásum all konar. Þar var selt handverk, ristaðar hnetur, jólaglögg, pylsur og bara allt milli himins og jarðar. Þegar maður er staddur á svona samkomum er gaman að loka augunum augnablik, heyra skvaldur á nokkrum tungumálum og ýmisskonar ljúfur ilmur er í loftinu, skemmtileg upplifun. Oh það er svo gaman í svona ferðum, allt nýtt, daglegt stress á bak og burt og maður endurnýjast svona á akveðinn hátt.
Passið ykkur á jólastressinu !
....Garrinn

