mánudagur, janúar 02, 2006

Nýtt ár

Já það er komið nýtt ár. Ég hef nú verið heldur linur við að skrifa pistla undanfarið, en það er kanski bara allt í lagi. Árið 2005 var alveg stórmerkilegt ár fyrir mig. Þetta var ár mikilla breytinga og ber þar hæst trúarskrefið mitt sem eiginlega byrjaði þegar Sara mágkona mín bauð mér með á samkomu í Fíladelfíu 9 janúar. Mér fannst nú svolítið einkennilegt að vera þarna í fyrsta sinn en ég fann samt að þetta átti vel við mig. Ég var duglegur að mæta í kirkjuna og það endaði með því að ég tók skírn þann 7 ágúst.


Fishing

Fjölskyldan fór í fádæma skemmtilegt sumarfrí
þar sem við keyrðum um landið þvert og endilangt á gömlu Toyotunni okkar dragandi gamlan tjaldvagn sem hefði sómt sér vel á Woodstock tónlistarhátíðinni.
Breakfast

Við enduðum svo á því að fara á gospel námskeið í Kirkjulækjarkoti sem er eitt það skemmtilegasta sem undirritaður hefur gert. Þar vaknaði upp söngfugl í mér sem hefur eiginlega ekki þagnað síðan.
Gospelnámskeið
Eitt af því sem ég lærði uppá nýtt er þakklæti, það eru engir hlutir sjálfgefnir í lífinu og ég er svo heppinn að eiga yndislega konu og börnin okkar eru gimsteinarnir í lífi okkar. Það að eiga góða fjölskyldu er ómetanlagt og þakka ég guði fyrir að vera þeirrar gæfu aðnjótandi.

Kæru vinir ég óska ykkur gæfu og velfarnaðar á nýju ári.

....................Garrinn